Lúxus helgarferð í Mývatnssveit
DAGS
Kl.
BROTTFÖR Kl.
10
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
1-2 skór
26.–27. september
Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Þóroddur Þóroddsson
Létt gönguferð, gisting og kvöldverður. Gist á Hótel Seli í Mývatnssveit.
Þessi ferð er skipulögð þannig að þeir sem vilja fara í stutta gönguferð yfir Dalfjall með Þóroddi, leiðin er frá Námaskarði að Kröflu. Eftir gönguna verður slakað á í heitum potti við Hótel Sel og síðan snæddur kvöldverður á hótelinu.
Þeir sem vilja sleppa gönguferðinni mæta á hótelið þegar þeir vilja en gert er ráð fyrir að gönguferðinni ljúki um kl. 15.
Gönguferð á Dalfjall: Sameinast í bíla á Akureyri og ekið austur í Námaskarð. Gengið norður frá Námaskarði og að mestu fylgt háhrygg Dalfjalls norður á móts við Kröfluvirkjun. Göngulandið með smá hæðum og lægðum en gott undir fæti, skoðaðir á leiðinni hraungígar og farið yfir eina hrauná. Af fjallinu er gott útsýni vestur yfir Mývatnssveit og austur yfir öræfin og að lokum yfir virkjunarsvæði Kröfluvirkjunar.
Vegalengd: 8 km. Gönguhækkun um 200 m.
Verð fyrir gistingu á Hótel Seli er 15.000 kr. á mann í tveggja manna herbergi og fyrir einstaklingsherbergi 25.000 kr. Greitt er á hótelinu. Innifalið: Gisting, morgunmatur og fararstjórn. Kvöldverður af matseðli greiddur sérstaklega.
Skráningu lýkur 25. ágúst því hótelið þarf að vita endanlegan fjölda þá.
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff

